Um Sprettum
Sprettum er staðurinn þar sem fólk á Íslandi finnur, gefur, selur og skiptist á plöntum eða plöntutengdum hlutum.
Fram að þessu hefur plöntuskiptum á Íslandi að mestu verið sinnt í gegnum samfélagsmiðla. Það hentar ekki öllum, sérstaklega ekki þeim sem eru ekki á Facebook.
Hjá Sprettum er þetta einfalt: Settu inn plöntu, fallega pottinn sem þú notar ekki lengur, eða annað plöntutengt, og komdu því í nýjar hendur.
Við viljum gera það eins auðvelt og hægt er að finna nýtt heimili fyrir plöntu sem er orðin of stór fyrir stofuna, deila afleggjurum eða finna akkúrat plöntuna sem þig vantar.
Taktu þátt og byrjaðu að skiptast á!
Mundu bara að sýna öðrum kurteisi og virðingu, og mæla þér mót á almannafæri.
Kveðja,
Sprettum-teymið